Leita í fréttum mbl.is
Embla

Enn eitt fuglaflensulyfið?

Ég er ekki frá því að þetta sé þriðja fréttin um lausn á fuglaflensu sem mbl hefur birt. Þeirra á meðal var ein fyrir nokkru síðan sem fjallaði um Íslending sem vann lyf úr þorskensímum. Les ég allar þessar fréttir á fyrsta apríl og tek ekki eftir því - eða eru fréttamenn hættir að fylgja eftir málum sem þessum? Ég hefði nú haldið að það væri stórmál ef Íslendingi tækist að finna lækningu við flensunni. Gætum setið á henni og nýtt sem lausn á fjármálaástandinu þegar allir aðrir eru illa farnir og slegið þannig tvær flugur í sama höfuðið...

Enn eitt fuglaflensulyfið?

Ég er ekki frá því að þetta sé þriðja fréttin um lausn á fuglaflensu sem mbl hefur birt. Þeirra á meðal var ein fyrir nokkru síðan sem fjallaði um Íslending sem vann lyf úr þorskensímum. Les ég allar þessar fréttir á fyrsta apríl og tek ekki eftir því - eða eru fréttamenn hættir að fylgja eftir málum sem þessum? Ég hefði nú haldið að það væri stórmál ef Íslendingi tækist að finna lækningu við flensunni. Gætum setið á henni og nýtt sem lausn á fjármálaástandinu þegar allir aðrir eru illa farnir og slegið þannig tvær flugur í sama höfuðið...
mbl.is Boða framleiðslu alhliða flensulyfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oliver og LOTR

Sviðsmyndin með fortjaldið fyrir Ég hef nú ekki aðrar heimildir fyrir mínu máli en það sem innanbúðarfólk sagði mér - en söngleiknum um Hringadróttinssögu var víst ekki hætt vegna taps eða lélegrar aðsóknar. Eigendur leikhússins sem leikurinn var settur upp í vildu hinsvegar ólmir fá inn í hús til sín nýjustu uppfærslu Cameron Mackintosh á söngleiknum um Oliver! eftir Lionel Bart.

Theatre Royal er eitt af stærstu leikhúsum West End og tekur um 2.200 manns í sæti. Það er eitt nokkurra í eigu The really useful group en það heitir framleiðslufyrirtæki Andrew Lloyd Webber. Hann er náunginn sem skrifaði Jesus Christ Superstar, Cats, Evita og marga aðra þekkta söngleiki.

Hringsviðið umrædda Hringadróttinssöngleikurinn kom til Drury Lane frá Kanada og hefur hafið innreið sína til Kölnar í Þýskalandi þar sem hann verður víst næst settur upp. Ólíkt mörgum söngleikjum er hann ekki til í nokkrum eintökum (Ameríkuútgáfa, Bretlandsútgáfa, Tour-útgáfa, Evrópuútgáfa o.s.frv.). Leikmynd sýningarinnar er það stór og flókin að ekki er hún eingöngu mjög dýr í smíðum heldur er sýningin sérstaklega fólkin í keyrslu og rekstri - bæði fyrir tæknifólk og leikara. Leikmyndin er einkum sett upp sem hringsvið í sextán hlutum, sem hver um sig hefur sína eigin sviðslyftu. Þá eru í sýningunni fjölmörg atriði og flókið samspil er á milli leikara, leikmyndar, hljómsveitar, tækni og öryggis á sviðinu.

Það er svo gaman að skjóta því við hérna eftirá að ég naut þess að vera starfsnemi ljósahönnuðar við uppsetninguna á Oliver og naut þar félagsskap margra af stórskotaliði breskra leikhúshönnuða. Hringadróttinssaga var líka ekkert það spes... 

 

 

  lotr2.jpg lotr2270407_468x324.jpg


mbl.is Metaðsókn á West End
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að leiðrétta misskilning

Undarleg frétt atarna. Auðvitað er leiðinlegt að vera hafður fyrir rangri sök, sérstaklega þegar afleiðingarnar eru svona svakalegar. En hver er bónin í fréttinni? Mér skilst á henni að leiðrétta beri misskilninginn og sitja eigi því um rétta aðila, beita þá ofbeldi og valda þeim vanlíðan.

Væri ekki réttara að beina því til fólks að leysa ágreining sinn friðsamlega yfir höfuð?


mbl.is Grímuklæddir menn sitja um heimili hjá saklausum pilti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlaut að vera

Mér þótti síðan mín eitthvað lengi að hlaðast niður hérna í London í dag. Hélt að það væri eitthvað að klikka á Ísafirði, þar sem hún er vistuð, en þetta skýrir málið. Hvenær ætla Íslendingar svo að færa sig nær nútímanum? Er gerfihnattasamband ómögulegt, óhagkvæmt eða hvað? Þarf ekki bara að setja á laggirnar geimferðastofnun og skjóta upp nokkrum gerfitunglum til að standa undir þessu?  Það er allavega óraunhægt að ætla að setja upp netbú á meðan bilun í einum streng veldur afföllum uppá 2/3 flutningsgetu.

Fróðir menn mega endilega segja mér meira um málið. 


mbl.is Bilun í ljósleiðara tengdum Farice
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt af nálinni?

Þeir sem hafa hið minnsta fylgst með Jackass þáttunum og út á hvað þeir ganga eru kannski ekki hissa. Er manngreyið ekki búinn að vera að reyna þetta frammi fyrir alþjóð í nokkurn tíma?
mbl.is Steve O á geðsjúkrahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einkasóknarprestur?

Umblogguð frétt er gott dæmi um arfa slakt málfar og nokkurn skort á að geta lesið yfir, gagnrýnt og hugsað. Vandræðalegt fyrir fréttamenn - nú eða þýðendur.

Í fyrsta lagi vert að segja að Barack Obama á ekki sóknarprest - allavega eru sóknarprestar ekki þess eðlist að nokkur geti átt þá. Því er rangt að segja að sóknarprestur Baracks Obama hafi gert eitt eða annað. Réttara væri að segja að sóknarprestur þeirrar sóknar sem Barack tilheyri hafi sagt nokkur orð um hið ó svo undarlega batterí - Bandaríki Norður Ameríku.

Það er reyndar fleira í fréttinni sem er alveg út úr kú. Kommentakerfið stendur til boða ef einhvern langar í páskaeggjaleit. 


mbl.is Sóknarprestur Obama veldur uppnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

úps.. Villa í kerfinu?

Ég var tekinn til við að skrifa enn eina hatursfærsluna á slæmu málfari og illa unnum fréttum MBL manna en sem betur fer rak ég augun í annan texta áður en færslan birtist.

Það fór ógurlega í taugarnar á mér að fréttatextinn hafi byrjað inni í miðju og ekki gefið skýringar á því hvaða fund var um að ræða, hvaða ráðherraembætti þeir áttu fund við, hver ráðherran væri og fleira.

Þegar ég svo fór inn í blogg-viðmótið til að ausa úr skálum reiði minnar sá ég að texti fréttarinnar á þeirri síðu var annars. Beinast liggur því við að formáli sem hefur verið ritaður í kerfið birtist ekki á forsíðu, af einhverjum ástæðum.

Laga'ða? 


mbl.is Lögreglumenn á fund ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Daður í beinni

Þú gætir eflaust líka átt með honum ástarsamband á laun og kúgað hann svolítið. Þá ertu heldur ekki bundin duttlungum hans heldur getur lifað eigin lífi. En ef maðurinn er ítalskur og á pening er líklegt að hann sé í tygjum við mafíuna, svo farðu varlega.

Sé ég fyrr- og núverandi forsætisráðherra segja við íslensku þjóðina að besta leiðin til velsældar sé með því að sænga hjá réttum aðilum. 'Það er góðæri hjá völdum hjónum í landinu' .. Nei, ég held nú síður.

Annars fylgir hvorki sögunni hvort hann hafi svarað spurningunni fyrir alvöru né hvort þau hafi náð saman eftir þáttinn, Berlusconi og þessi unga stúlka.


mbl.is Gifstu milljónamæringi segir Berlusconi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Obbosí, Björk

Ekki er allt þetta havarí útaf þeim orðum sem Björk lét falla á tónleikum um daginn. Nei mér er spurn...

Skemmtilegt hjá Kínverskum stjörnvöldum samt að stöðva mótmæli lýðræðissinna - gott líka að þagga niður í þeim endanlega! En svona í alvöru þá er ágætt að taka það fram að ég er á engan hátt hlynntur bælingu eða manndrápum - það er bara ekki hægt að tala um svona súrrealíska stefnu í landspólitík á raunsæan hátt. Þú segir fólki ekkert bara að þegja þó þér líki ekki hvað það segir.


mbl.is Fréttir um marga látna í Tíbet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Færsluflokkar

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband